Burstner Premio Life 430 TS 2022 hjólhýsi með svefnpláss fyrir 4 manns. Eigin þyngd 982 kg og heildarþyngd 1100 kg, stutt og þægilegt hjólhýsi í akstri sem flestir bílar geta dregið.
Það sem fylgir með:
-Diskar og hnífapör
-Pottar og pönnur
-Kælir með frystir
-Rafmagns- og/eða gas ofn til upphitunar
-Klósettaðstaða og sturta í vagninum
-Gaskútur
-Útileguborð og 4 stólar
-Sængur og koddar (fyrir auka gjald 5.000 kr)
50.000 kr. tryggingargjald er gteitt strax við bókun.
150.000 kr. vikugjald er greitt áður/þegar hjólhýsi er sótt.Tryggingagjald er endurgreitt í lok þegar hýsið er skilað í topp lagi.Skilmálar:- Leigutaki ber ábyrgð á vagninum og búnaði hans, og skuldbindur leigutaki sig til að bæta það tjón sem verða kann á vagninum á meðan á leigutíma stendur.
- Reykingar og allt dýrahald eru með öllu bannað í ferðavagninum.
- Ökutæki þarf að hafa viðurkenndan tengibúnað fyrir ferðavagninn.- Óheimilt er að aka með ferðavagninn um vegleysur, óbrúaðar ár, vegtroðninga, snjóskafla, ís eða aðrar vegleysur.
- Leigutaki skuldbindur sig til að ganga vel um vagninn og skila honum hreinum á umsömdum stað og tíma.- Sé vagninum ekki skilað hreinum skal leigutaki greiða þrifagjald 20.000 kr.- Hjólhýsi er afhent á fimmtudögum milli kl. 13:00-18:00 á Reykjanesbær eða Hafnarfiðir samkvæmt samkomulagi.- Skal skila hjólhýsi á sama stað á miðvikudögum fyrir kl. 16.00 (einnig er hægt að skila fyrr).
Hjólhýsi vika: 03.09-09.09
150.000krPrice
